Á hvaða hlaupara ætlar þú að heita?

24. júní 2025

Reykjavíkurmaraþonið fer fram í ágúst og er einn mikilvægasti viðburður ársins fyrir Alzheimersamtökin. Hlaupið er stór tekjulind og við höfum í gegnum árin fengið ómetanlegan stuðning frá fólki sem ákveður að hlaupa fyrir samtökin. Eitthvað sem við erum innilega þakklát fyrir.

Skráðu þig og segðu frá

Við hvetjum öll sem ætla að hlaupa fyrir Alzheimersamtökin að skrá sig á hlaupastyrkur.is. Þar er hægt að setja inn mynd og stuttan texta um hvers vegna þú hleypur fyrir samtökin. Slíkar persónulegar sögur hjálpa til við að vekja athygli og auka stuðning við málstaðinn.

Upphitun fyrir hlaupadaginn

Öllum sem skrá sig sem hlaupara fyrir Alzheimersamtökin verður boðið í sérstaka upphitun fyrir Reykjavíkurmaraþonið. Þar verður m.a. boðið upp á léttar veitingar, fyrirlestur frá reyndum hlaupara og merktir hlaupabolir afhentir.

Taktu þátt – þó þú hlaupir ekki

Ef þú ætlar ekki að hlaupa í ár getur þú samt stutt málefnið með því að heita á einn af hlaupurunum okkar. Á hlaupastyrkur.is má finna lista yfir einstaklinga og hópa sem hlaupa til styrktar Alzheimersamtökunum. Veldu þinn hlaupara og vertu með 💜

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?