Hátt í 200 manns fengu fræðslu á Norðurlandi

6. júní 2025

Við erum afar ánægð eftir ákaflega vel heppnaða ferð norður á land. Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna, og Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri héldu þar fjögur fræðsluerindi um starf Alzheimersamtakanna og heilabilun og samskipti, sem voru í heildina sótt af hátt í 200 manns. Þá áttu þær einnig mjög góðan fund á Minnismóttökunni á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Hlýjar móttökur og góð mæting á Húsavík

Fyrsti áfangastaður var Húsavík, nánar tiltekið Félagsmiðstöðin Hlynur. Þar tóku alzheimertenglarnir á Húsavík, þær Fanney og Jóhanna, vel á móti okkur með veitingum og hlýju en þær voru einnig búnar að vera duglegar að auglýsa viðburðinn. Það var því góð mæting og ýmsar spurningar og vangaveltur sem komu fram. Í lokin mátti einnig skynja þakklæti meðal hópsins sem gleður okkur alltaf einstaklega mikið.

Fræðsla, veður og söngur á Dalvík

Í gulri veðurviðvörun var haldið til Dalvíkur þar sem hvít jörð tók á móti okkur og það í byrjun júní. Á hjúkrunarheimilinu Dalbæ vorum við með fræðsluerindi fyrir starfsfólkið en stjórnendur þar á bæ höfðu aðstoðað okkur við skipulagningu ferðarinnar.

Um kvöldið mættum við í Berg, glæsilega menningarmiðstöð þeirra Dalvíkinga þar sem var þétt dagskrá og vel mætt þrátt fyrir kröftugan vind. Auk fræðslu um Alzheimersamtökin, heilabilun og samskipti kynnti Elísa Rán Ingvarsdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri Dalbæjar verkefnið Gott að eldast. Þá voru hjónin Líney Úlfarsdóttir sálfræðingur og Svavar Knútur tónlistarmaður einnig með stutta hugvekju um félagslega einangrun sem endaði með að Svavar Knútur brast í söng.

Þetta var ákaflega góður dagur á Dalvík sem endaði með því að nýr alzheimertengil bættist við í okkar góða hóp víðs vegar um landið. Það er Kristín Heiða, iðjuþjálfi í Dalbæ.

Húsfyllir á Akureyri

Á Akureyri byrjuðu þær stöllur að funda með starfsfólki Minnismóttökunnar á sjúkrahúsinu þar í bæ. Ákaflega fræðandi og mikilvægur fundur fyrir alla aðila.

Ferðin endaði síðan með húsfylli í félagsmiðstöðinni Sölku á Akureyri. Eftir fræðslu Thelmu og Ástu Kristínar fór Björg Jónína, alzheimertengill á Akureyri yfir þeirra góða starf en fyrsta fimmtudag í mánuði er haldið Alzheimerkaffi í safnaðarheimili Akureyrarkirkju og þá er einnig stuðningshópur fyrir aðstandendur starfræktur í bænum.

Takk fyrir okkur

Ferðir eins og þessar eru okkur ákaflega mikilvægar en þá myndum við oft góð tengsl og margir leita til okkar í kjölfarið eftir ráðgjöf og stuðning.

Við þökkum öllum sem tóku á móti okkur og hlýddu á okkur í þessari ferð. Við fundum fyrir hlýhug og þakklæti sem styrkir okkur í þessu mikilvæga starfi.

Ef áhugi er á að fá fræðsluerindi frá Alzheimersamtökunum, er velkomið að hafa samband á netfangið alzheimer@alzheimer.is

Myndband

Við útbjuggum stutt myndband um ferðina okkar sem má horfa á hér

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?