Góa og Bónus styrkja Alzheimersamtökin

19. júní 2025

Alzheimersamtökin í samstarfi við Góu og Bónus seldu fyrir páskana ógleymanleg páskaegg í takmörkuðu upplagi í verslunum Bónus. Eggin var hægt að fá í nokkrum af stærstu verslunum Bónus og með hverju eggi sem seldist runnu 1.000 kr. til Alzheimersamtakanna. Skemmst er að segja frá því að öll eggin sem framleidd voru seldust upp í verslunum. 

Í hádeginu í dag afhenti Góa samtökunum ávísun og styrk að upphæð 500.000 kr. og var það Guðlaugur Eyjólfsson framkvæmdastjóri Alzheimersamtakanna sem tók við ávísuninni frá Helga Vilhjálmssyni í Góu.

Við kunnum Góu og Bónus miklar þakkir fyrir styrkinn og frábært samstarf 💜

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?