Góð og afar gagnleg fræðsla um greiningarferlið

10. desember 2025

Helga Eyjólfsdóttir, öldrunarlæknir og yfirlæknir á Minnismóttökunni á Landakoti, kom til okkar og hélt áhugavert og upplýsandi erindi um greiningarferli heilabilunar. Hún fór yfir það hvað gerist frá því að grunur vaknar þar til greining liggur fyrir.

Helga hóf fræðsluna á því að fara yfir hvað heilabilun er í grunninn og helstu áhættuþætti. Þá útskýrði hún að eitt það fyrsta sem læknar gera sé að kanna hvort einkenni geti stafað af öðrum, viðsnúanlegum orsökum, t.d. þunglyndi, skjaldkirtilssjúkdómi, áfengisvanda, vítamínskorti, kulnun eða alvarlegum kæfisvefni.

Tvískipt greiningarferli

Helga sagði frá því að greiningarferli vitrænnar skerðingar sé almennt skipt í tvær leiðir. Annars vegar styttri útgáfan sem fer fram á heilsugæslunni og hins vegar lengri útgáfan sem eigi sér stað á Minnismóttökunni.

Hugsunin, á næstu misserum, er að efla heilsugæsluna þannig að hún geti sinnt enn stærri hluta greiningarferlisins og þannig stytt biðtímann á Minnismóttökunni, sem því miður hefur verið býsna langur.

Á heilsugæslunni fara fram ýmsar grunnrannsóknir, svo sem MMSE og klukkupróf, spurningarlistar fyrir aðstandendur, blóðprufur, myndgreining á höfði og lyfjayfirferð. Í mörgum tilvikum er hægt að ljúka greiningunni þar, gjarnan með stuðningi frá Minnismóttöku.

Einstaklingum með snemmkomin, ódæmigerð eða væg einkenni er hins vegar vísað á Minnismóttökuna þar sem fram fer ítarlegra mat. Þar á meðal taugasálfræðimat, stundum talmeinafræðimat, segulómun, mænuvökvapróf og önnur sérhæfð myndgreining, t.d. PET og DaT.

Meðferðir, úrræði og verkefni Minnismóttökunnar

Helga fór jafnframt yfir hvað fer fram í greiningarviðtölum, hvaða meðferðir og úrræði eru í boði og kynnti þau fjölbreyttu verkefni sem Minnismóttakan vinnur að.

Fræðslan var afar vel sótt og urðu góðar umræður í lokin.

Við þökkum Helgu kærlega fyrir frábæra og skýra yfirferð og hvetjum þau sem komust ekki til að horfa á upptökuna.

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?