Góð gjöf í Seigluna
27. febrúar 2026
Félagarnir Geir Hauksson og Magnús Ingjaldsson komu í Seigluna í vikunni færandi hendi fyrir hönd Lionsklúbbs Hafnarfjarðar. Ákaflega rausnarlega gjöf eða þrjár spjaldtölvur með lyklaborðshulstrum og tveir Bose hátalarar.
Slíkar gjafir skipta Seigluna miklu máli. Tækin munu nýtast vel í daglegri starfsemi, í þjálfun, fræðslu, tónlist og samveru og styðja áfram við þátttöku, virkni og gleði hjá hópnum.
Við sendum Lionsklúbbi Hafnarfjarðar okkar innilegustu þakkir fyrir hlýhuginn, traustið og stuðninginn við starfið. Það er dýrmætt að finna að samfélagið stendur með okkur
Á myndinni er Harpa Björgvinsdóttir, forstöðukona Seiglunnar ásamt þeim Geir og Magnúsi.