Góð fræðsluferð um Vestfirði

16. júní 2026

Í síðustu viku flugum við vestur á firði og héldum fjögur fræðsluerindi. Við byrjuðum á erindi fyrir almenning í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði þar sem mætingin var með besta móti.

Daginn eftir keyrðum við suður til Patreksfjarðar og hittum fyrst góðan hóp fagfólks sem starfar hjá Hvest og sveitarfélaginu. Seinna um daginn lá leiðin í félagsheimilið þar sem fólk á öllum aldri mætti til leiks – allt frá tveggja mánaða ungbarni til eldri borgara. Þar spunnust líflegar og góðar umræður, líkt og fyrr um daginn.

Við enduðum ferðina svo aftur á Ísafirði og hittum flottan hóp fagfólks úr nokkrum byggðarkjörnum. Áhugi þátttakenda var mikill og fundum við sérstaklega fyrir ánægju með þau einföldu verkfæri í samskiptum sem kynnt voru, auk ýmissa hagnýtra ráða sem nýtast í daglegu starfi.

Áskoranir og tækifæri

Þessar ferðir okkar um landsbyggðina eru okkur afar dýrmætar. Það er ómetanlegt að hitta fólk, heyra reynslusögur úr daglegu lífi og starfi og kynnast þeim áskorunum og tækifærum sem fólk um land allt stendur frammi fyrir.

Þakkir til Alzheimertengla

Við viljum jafnframt færa Alzheimertenglum okkar á Vestfjörðum, þeim Svanlaugu og Arnheiði, innilegar þakkir fyrir aðstoðina. Það var sannarlega gott að koma til ykkar.

Myndband

Við útbjuggum einnig stutt myndband úr ferðina sem má horfa á hér