Góð ferð í Hveragerði
26. mars 2026
Við skelltum okkur austur fyrir fjall í gær, mitt á milli tveggja lægða, og héldum tvö fræðsluerindi í Hveragerði. Annars vegar fyrir starfsfólk á Ási og í stuðningsþjónustu (heimahjúkrun og – stuðningur) og hins vegar opinn fund í Þorlákssetri, húsnæði Félags eldri borgara.
Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Alzheimersamtakanna, og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna, sáu um fræðsluna. Áherslurnar voru ólíkar eftir hópum. Hjá fagfólki var meiri áhersla lögð á að auka skilning á heilabilun og hjálpa til við að túlka hegðun sem getur fylgt sjúkdómnum. Þá fengu þátttakendur einnig einföld og hagnýt verkfæri til samskipta. Góðar umræður spunnust þar, meðal annars um það að nýta tónlist í starfi, eitthvað sem getur reynst afar áhrifaríkt.
Á opna fundinum, sem var mjög vel sóttur, var markmiðið að kynna starfsemi samtakanna og auka þekkingu og skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir. Slík fræðsla er jafnframt mikilvæg til að opna umræðuna og draga úr fordómum í samfélaginu.
Alzheimertenglar sáu um skipulagið
Í Hveragerði starfa tveir Alzheimertenglar, Eygló Huld Jóhannesdóttir, deildarstjóri stuðningsþjónustu hjá Hveragerðisbæ, og Rakel Björgvinsdóttir, félagsliði.
Þær áttu heiðurinn af skipulagi og kynningu á fundunum og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Það skiptir miklu máli að hafa slíka tengla, sem þekkja sitt nærumhverfi og geta brúað bilið milli samtakanna og samfélagsins.
Tveir nýir fjólubláir bekkir
Að frumkvæði Eyglóar hafa nú verið settir upp tveir fjólubláir bekkir í Hveragerði. Annar við hjúkrunarheimilið Ás og hinn við heilsugæsluna. Fjólubláum bekkjum er ætlað að vekja athygli á heilabilun og stuðla að aukinni fræðslu og opnari umræðu um málefnið í samfélaginu.
Takk fyrir komuna
Við þökkum öllum sem komu og hlýddu á okkur. Við fundum fyrir hlýhug og þakklæti sem styrkir okkur í þessu mikilvæga starfi.