Fyrsta stjórnin í heimsókn

16. febrúar 2026

Á dögunum heimsótti fyrsta stjórn Alzheimersamtakanna okkur í Lífsgæðasetrið. Þau Hrafn Magnússon, Helga Einarsdóttir og Þröstur Einarsson ásamt Guðjóni Brjánssyni sem var í undirbúningshópi stofnunar samtakanna og seinna stjórnarmaður.

Þau rifjuðu upp aðdraganda stofnunar og fyrstu árin í starfi samtakanna og fengu kynningu á starfinu í dag. Þau voru ánægð með hvernig samtökin hafa þróast í gegnum árin.

Mjög skemmtileg heimsókn. Á meðfylgjandi mynd eru þau ásamt núverandi stjórnarformanni Ragnheiði Ríkharðsdóttur.

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?