Fullt hús á erindi um erfðir og forvarnir
17. apríl 2026
Hvað ræður því hvort við fáum heilabilunarsjúkdóm og hversu mikið getum við sjálf haft áhrif? Þessari spurningu og fleirum svaraði Steinunn Þórðardóttir, öldrunarlæknir í erindi sem hún hélt hjá okkur fyrir troðfullum sal.
Hún fór yfir erfðaþætti og lífsstíl og hvað það getur þýtt ef heilabilun er algeng í fjölskyldunni. Þá fjallaði hún einnig um hvað hvert og eitt okkar getur gert til að draga úr eigin áhættu. Fræðslan var afar vel sótt og mikið um góðar spurningar í lokin.
Við þökkum Steinunni kærlega fyrir góðan og fróðlegan fyrirlestur og hvetjum þau sem komust ekki til að horfa á upptökuna.