Fréttir um blóðprufu til að greina Alzheimer sjúkdóm
17. maí 2025
Jón Snædal öldrunarlæknir skrifar:
Á vefsíðunum ruv.is og mbl.is birtust í dag fréttir um að Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hafi samþykkt notkun blóðsýnis til greiningar á Alzheimer sjúkdómi. Slíkt samþykki greiðir leið til notkunar og niðurgreiðslu þar í landi en hefur enga formlega þýðingu á Íslandi. Tvö atriði í fréttinni þurfa nánari skýringar við.
Mæla þarf tvö prótein (pTau217 og ß-Amyloid 1-42) og reikna hlutfallið á milli þeirra. Samþykkið nær því aðeins til mælinga á báðum efnunum og hugsanlega mun fyrirtækið sem óskaði eftir leyfinu fá einkaleyfi á mælingunum í Bandaríkjunum, enda þróuðu vísindamenn þess aðferðina.
Í undirbúningi er að mæla prótein í sama tilgangi hér á landi og verður það sennilega alveg óháð þessu fyrirtæki. Nánar um það þegar mælingar hefjast á Landspítalanum.
Það er ekki nægilega nákvæmt að segja að mælingin sé til að greina Alzheimer sjúkdóm. Hið rétta er að aðferðin gefur í skyn útfellingar í heila sem taldar eru orsaka sjúkdóminn. Langoftast fer þetta saman en það er þó vel þekkt að einstaklingar í elsta aldurshópnum (eldri en 80 ára) geta haft slíkar útfellingar án þess að hafa sjúkdóm eða fá hann síðar. Sennilega á það nánast aldrei við um þá sem eru innan við sjötugt en gæti verið tilfellið í einstaka tilvikum í aldurshópunum þar á milli. Af þessum sökum er ekki hægt að mæla með notkun aðferðarinnar hjá þeim sem ekki hafa einhver einkenni svo sem mælanlega skerðingu á minni.
Á minnismóttökunni á Landakoti hefur verið rætt hvernig nota skuli þessa nýju aðferð og sams konar undirbúningur hefur átt sér stað á minnismóttökum á Norðurlöndunum. Byrjað verður á að bæta rannsókninni við aðrar greiningaraðferðir til að fá staðfestingu á notagildi hennar í daglegri starfsemi en hugsanlega mun hún koma í stað mænuvökvatöku síðar.
Dagana 6. og 7. Nóvember verður haldin alþjóðleg ráðstefna hér á landi um “Einstaklingsmiðaða læknisfræði og umönnun í heilabilun”. Ábyrgðaraðili er Alzheimer samtökin á Íslandi en ýmsir aðrir koma að henni. Hún verður opin öllum og á heimasíðu ráðstefnunnar má finna helstu upplýsingar: https://events.bizzabo.com/icpcm
Á ráðstefnunni verður meðal annars málþing um notkun blóðsýna til greiningar á útfellingum í heila og þar með hvernig nýta megi aðferðina. Rætt verður um notkun hennar í lyfjarannsóknum og til greiningar á minnismóttökum og litið til framtíðar varðandi hugsanlega notkun til skimunar á sjúkdómnum. Málþinginu mun stýra einn helsti sérfræðingur heimsins á þessu sviði, prófessor Henrik Zetterberg.