Fræðsla og góðar móttökur á Höfn í Hornafirði

16. apríl 2026

Í vikunni skelltum við okkur í fræðsluferð til Hafnar í Hornafirði sem tók á móti okkur með sól og blíðu. Þangað var ákaflega gott að koma en Alzheimertenglar bæjarins hafa haldið úti öflugu starfi þar að undanförnu.

Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna, héldu alls þrjú fræðsluerindi í bænum.

Fyrir fagfólk

Fyrsti viðkomustaður var hjúkrunarheimilið Skjólvangur. Þar var sérstök fræðsla fyrir starfsfólk heimilins en þangað kom einnig starfsfólk í félagsþjónustu bæjarins. Markmið fræðslunnar var meðal annars að auka skilning á heilabilun og veita þeim fleiri verkfæri í samskiptum.

Þar spunnust upp góðar og gagnlegar umræður. Einnig er dýrmætt fyrir okkur að heyra reynslusögur frá þeim.

Í sundlauginni

Undanfarna mánuði höfum við unnið að sérstakri fræðslu fyrir starfsfólk í sundlaugum með það að markmiði að fræða það um heilabilun, einkenni hennar og hvernig best sé að mæta fólki með heilabilun og aðstandendum þeirra í sundlaugum.

Við hittum því starfsfólkið í sundlauginni á Höfn. Fræðslan gekk vel, spurningar voru góðar og gagnlegar og við staðráðin í að koma þessari fræðslu til enn fleiri sundlauga

Opið fræðsluerindi í Nýheimum

Síðasta erindið í ferðinni var haldið í Nýheimum og var opið öllum áhugasömum. Þar kynntum við starf samtakanna, klöppuðum fyrir góðu starfi Alzheimertenglanna í bænum og fjölluðum almennt um heilabilun og samskipti.

Það var fínasta mæting og nokkuð um spurningar og vangaveltur í lokin.

Takk fyrir okkur

Ferðir sem þessar eru okkur afar mikilvægar enda leggjum við ríka áherslu á að veita fræðslu sem víðast um landið. Okkar reynsla er sú að í kjölfarið leitar fólk til okkar eftir ráðgjöf og stuðning.

Við þökkum kærlega fyrir okkur. Við fundum fyrir hlýhug og þakklæti sem styrkir okkur í þessu mikilvæga starfi.

Myndband

Við útbjuggum einnig stutt myndband úr ferðina sem má horfa á hér

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?