Fjólublár bekkur á Vopnafirði

20. apríl 2026

Um nokkurt skeið hefur ítrekað sprottið upp umræða á hjúkrunarheimilinu Sundabúð á Vopnafirði að gaman væri að fá fjólubláan bekk í bæinn og stuðla þannig að aukinni vitund um heilabilun.

Fyrir fáeinum vikum ákvað deildarstjóri á heimilinu að senda mynd af slíkum bekk til starfsmanna þjónustumiðstöðvar Vopnafjarðarhrepps og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Tæpum tveimur vikum síðar var bekkurinn tilbúinn og kominn á sinn stað.

Stendur við Garðsklett

Bekkurinn stendur á fallegum stað við Garðsklett. Staðsetningin var valin með það í huga að hún er í nálægð við Sundabúð, þar sem er hjúkrunardeild á neðri hæð og leiguíbúðir fyrir aldraða á efri hæð.

Þá gengur fólk mikið þessa leið og tyllir sér á bekkinn. Staðurinn er jafnframt áberandi og því líklegt að bekkurinn veki forvitni bæjarbúa og gesta.  

Vekur athygli á heilabilun

Fjólubláum bekkjum er ætlað að vekja athygli á heilabilun og stuðla að aukinni fræðslu og opnari umræðu um málefnið í samfélaginu.

Ef þitt bæjarfélag hefur áhuga á að setja upp bekk þá má endilega hafa samband við okkur í síma 533 1088 eða senda okkur tölvupóst á alzheimer@alzheimer.is

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?