Fréttir

Fjólubláir bekkir við Brákarhlíð

Fjólubláir bekkir við Brákarhlíð

22. júní 2026

Í nokkurn tíma hafa Alzheimertenglarnir okkar í Borgarnesi, þær Sigga Skúla og Birna Hermanns, unnið að því að fá fjólubláan bekk í sveitarfélagið. Stjórnendur hjúkrunarheimilisins Brákarhlíðar tóku vel í hugmyndina og lögðu til tvo bekki. Þaðan lá leiðin til vina þeirra í Öldunni, vernduðum vinnustað, sem tóku að sér að mála bekkina í fallegum fjólubláum lit.

Bekkirnir standa nú annars vegar við aðalinngang Brákarhlíðar og hins vegar við inngang á neðstu hæð þar sem dagdvalargestir og aðrir eiga leið um.

Vekja athygli á heilabilun

Fjólubláum bekkjum er ætlað að vekja athygli á heilabilun og stuðla að aukinni fræðslu og opnari umræðu um málefnið í samfélaginu. Fjólublár er alþjóðlegur litur vitundarvakningar um heilabilun og hefur því orðið tákn um fræðslu, skilning og stuðning við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra.

Vantar bekk í þitt sveitarfélag

Ef áhugi er fyrir því að setja upp fjólubláan bekk í þínu sveitarfélagi hvetjum við ykkur til að hafa samband við okkur í síma 533 1088 eða með tölvupósti á alzheimer@alzheimer.is.