Fanney Björg leiðir Eljuna

12. júní 2026

Fanney Björg Karlsdóttir hefur verið ráðin forstöðukona Eljunnar sem mun opna í Geðræktarhúsinu í Kópavogi í janúar 2027. Fanney er iðjuþjálfi og hefur áratuga reynslu af starfi sem iðjuþjálfi og stjórnandi, nú síðast sem yfiriðjuþjálfi Grundarheimilanna. Fanney hefur einnig lokið framhaldsnámi í ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun.

Við erum alveg í skýjunum með að fá Fanneyju til að leiða þetta mikilvæga verkefni en hún mun hefja störf í september. 

Eljan er þjónustuúrræði fyrir fólk á fyrstu stigum heilabilunar, sambærilegt Seiglunni í Lífsgæðasetrinu í Hafnarfirði. Í starfseminni er lögð áhersla á að tryggja líkamlega, vitræna og félagslega virkni þjónustuþega, sem rannsóknir hafa sýnt fram á að geti hægt á framgangi sjúkdómsins, minnkað einkenni og aukið lífsgæði. 

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?