Dalvík hefur eignast fjólubláan bekk

13. mars 2026

Fyrir nokkrum vikum kviknaði sú hugmynd á Dalvík að setja upp fjólubláan bekk. Kristín Heiða Halldórsdóttir, Alzheimertengill á staðnum, tók málið að sér og starfsmenn áhaldahússins brugðust fljótt við.

Bekkurinn er nú kominn upp við Kirkjuveg, skammt frá hjúkrunarheimilinu. Þar liggur einnig fjölfarinn göngustígur svo bekkurinn er vel sýnilegur. Frá honum blasir við fallegt útsýni, bæði niður að sjó og upp til fjalla, auk þess sem þaðan sést til leikskólans og hjúkrunarheimilisins.

Fjólubláum bekkjum er ætlað að vekja athygli á heilabilun og stuðla að aukinni fræðslu og opnari umræðu um málefnið í samfélaginu.

Setja upp bekk

Ef þitt bæjarfélag hefur áhuga á að setja upp bekk þá má endilega hafa samband við okkur í síma 533 1088 eða senda okkur tölvupóst á alzheimer@alzheimer.is

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?