Björn Skúlason í Alzheimerkaffi
9. mars 2026
Við fengum góðan gest í heimsókn í Alzheimerkaffi síðastliðinn fimmtudag – verndara samtakanna, Björn Skúlason eiginmann forseta.
Björn byrjaði á að segja áhugaverðar sögur úr kosningabaráttunni og frá þeim áskorunum sem þau hjónin þurftu að takast á við á þeim tíma. Að því loknu svaraði hann spurningum frá gestum sem meðal annars vildu vita hvað hefði komið honum mest á óvart í nýja hlutverkinu, hvers vegna hann gegni hlutverki verndara Alzheimersamtakanna og hvort fjölskyldan næði að eiga „venjulegar“ fjölskyldustundir.
Björn svaraði af hlýju og hreinskilni og gaf sér einnig góðan tíma til að spjalla við fólk að erindinu loknu. Hann tók svo einnig þátt í samsöngnum í lokin, sem er alltaf einn af hápunktum Alzheimerkaffisins.
Eins og endranær stýrði Sveinn Arnar söngnum og spilaði undir á píanó.
Soroptimistaklúbbur Hafnarfjarðar og Garðabæjar sá að þessu sinni um veitingarnar, sem voru bæði glæsilegar og góðar.
Við þökkum Birni, Sveini Arnari og Soroptimistum kærlega fyrir þeirra framlag og öllum sem mættu fyrir notalega samveru.
Næsta Alzheimerkaffi verður haldið 9. apríl, viku seinna en vanalega vegna páskanna.