Bekkjaganga á 11 stöðum
11. júní 2026
Í síðustu viku héldum við bekkjagöngu víðs vegar um landið eða í 11 bæjarfélögum.
Þetta var þriðja árið sem við höldum svona göngu en þá var hún einungis í Hafnarfirði. Við erum afar ánægð með að það var gengið saman svona víða.
Tilgangur göngunnar er að vekja athygli á og stuðla að umræðu um heilabilun sem er mikilvægur þáttur í að minnka fordóma í samfélaginu. Þá er þetta jafnframt liður í því að stuðla að líkamlegri og félagslegri virkni sem eru mikilvægir þættir almennrar heilsu.
Takk takk takk öll sem tókuð þátt. Við erum viss um að við verðum á enn fleiri stöðum á næsta ári og fáum enn betri þátttöku.
Það má skoða myndir úr nokkrum sveitarfélögum með því að smella hér en sumir voru heppnari með veður en aðrir.