Alzheimersamtökin heimsækja Norðurland

19. maí 2025

Við í Alzheimersamtökunum höldum reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið, þar sem við kynnum starfsemi samtakanna og veitum fræðslu um heilabilun og samskipti.

Norðurland

Nú er förinni heitið norður þar sem við höldum þrjú fræðsluerindi sem eru öllum opin. Eitt á Húsavík, annað á Dalvík og það þriðja á Akureyri.

  • mán. 2. júní kl. 17:00 – Húsavík - Hlynur, félagsaðstaða eldri borgara
  • þri. 3. júní kl. 19:30 – Dalvík - Berg menningarhús
  • mið. 4. júní kl. 17:00 - Akureyri - Félagsmiðstöðin Salka
  • Þeir sem mæta öðlast skilning á heilabilun og hvernig megi bregðast við breyttum aðstæðum. Þá verður farið yfir leiðir til að auðvelda samskipti og hugmyndir fyrir ánægjulegar samverustundir reifaðar.

    Eitt af meginmarkmiðum Alzheimersamtakanna er annars að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir.

    Hverjir

    Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna mæta.

    Á fundinum á Dalvík verður Elísa Rán Ingvarsdóttir, hjúkrunarforstjóri Dalbæjar, einnig með stutt erindið og kynnir m.a. þróunarverkefnið Gott að eldast. Líney Úlfarsdóttir sálfræðingur og Svavar Knútur tónlistarmaður verða einnig með stutta hugvekju.

    Á Akureyri verður Björg Jónína Gunnarsdóttir, Alzheimertengill á Akureyri með kynningu á starfinu þar í bæ.

    Fyrir hverja

    Fyrirlestrarnir eru opnir öllum áhugasömum og aðgangur ókeypis.

    Vantar þig aðstoð?

    Vantar þig aðstoð?