Innblástur um list og líðan hjá fólki með heilabilun
11. febrúar 2026
Hvernig getur list og sköpun aukið lífsgæði, styrkt tengsl og skapað merkingarbær augnablik, sérstaklega fyrir fólk sem lifir með heilabilun og aðstandendur þeirra? Þessum spurningum velti Unnur Mjöll, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar hjá Hafnarborg, fyrir sér í erindinu List & líðan sem hún hélt hjá okkur. Markmið hennar var að veita innblástur, hugmyndir og trú á að sköpun geti verið hluti af daglegu lífi, óháð aðstæðum.
Gæðastundir
List getur kallað fram minningar og tilfinningar án þess að krefjast staðreynda eða fræðilegrar þekkingar. Hún skapar rými þar sem fólk fær að vera þátttakendur, ekki aðeins áhorfendur, og gefur tækifæri til gleði, forvitni og tengingar.
Unnur deildi einföldum en áhrifaríkum hugmyndum sem geta nýst til að skapa gæðastundir með einstaklingum með heilabilun. Til dæmis má fara á listasafn, staldra við eina mynd og spyrja opnar spurningar sem geta opnað heilan heim samtals. Þar sem engin svör eru rétt eða röng, heldur skiptir þátttaka og tenging mestu máli:
· Hvað sérðu?
· Hvað finnur þú?
· Hvað minnir þetta þig á?
· Hvaða litir eru afgerandi?
· Úr hvaða efni er listaverkið?
· Hvaða form eru áberandi?
Markmiðið er nefnilega ekki að muna staðreyndir heldur að upplifa augnablikið og njóta samverunnar.
Sköpun í gönguferðum
Þá kom Unnur einnig inn á það að sköpun geti átt sér stað í gönguferðum, við getum safnað efni og skapað saman. Gert mandölur úr steinum, safnað efni í fjöru, nota lauf og greinar eða tekið ljósmyndir.
Upptaka
Við þökkum Unni Mjöll kærlega fyrir áhugaverða og hvetjandi fræðslu. Erindið hennar var tekið upp og og hvetjum við áhugasama til að horfa á upptökuna.
Nánar um Unni Mjöll
Unnur Mjöll S. Leifsdóttir er verkefnastjóri fræðslu og miðlunar hjá Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar. Hún er myndlistarkona, safnfræðslukennari og meistaranemi í listmeðferðarfræði við OsloMet háskólann í Osló. Hún lauk BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands (LHÍ) og MA-gráðu frá School of Visual Arts í New York, auk kennsluréttinda.
Í starfi sínu hjá Hafnarborg vinnur Unnur Mjöll að þróun fræðslu- og miðlunarverkefna með það að markmiði að gera listina aðgengilega og merkingarbæra fyrir fjölbreyttan hóp gesta. Hún hefur meðal annars leitt safnfræðslu, listasmiðjur og samtöl milli lista fólks og almennings.
Áhugaverð söfn
Hér er listi frá Unni um áhugaverð söfn á höfuðborgarsvæðinu.
· Safn Ásgríms Jónssonar (opið eftir samkomulagi), Safnahúsið við Hverfisgötu
· Kjarvalsstaðir, Ásmundarsafn og Hafnarhús