Aðalfundargerð - Breyting á nafni

15. maí 2026

Aðalfundur Alzheimersamtakanna fór fram þriðjudaginn 12. maí í Lífsgæðasetrinu í Hafnarfirði. 

Helstu fréttir af fundinum voru að tillaga stjórnar um að breyta nafni samtakanna í 'Heilahjálp - samtök um heilabilun' var samþykkt. 

Hér er skýring sem fylgdi með lagabreytingartillögunni:

Alzheimersamtökin eru eins og stendur í 3. gr. laga félagsins: „Félag einstaklinga með heilabilun, aðstandenda og velunnara þeirra“. Heilabilun er regnhlífarhugtak yfir um 200 sjúkdóma sem valda heilabilun. Um 40% einstaklinga með heilabilun eru ekki greind með Alzheimer.

Nafnið Alzheimersamtökin nær því ekki nægilega vel utan um starfsemi félagsins og hefur valdið því að þau sem greinast með heilabilun en ekki Alzheimer hafa ekki leitað til samtakanna. Starfsfólk Alzheimersamtakanna þarf ítrekað í sínum daglegu störfum að útskýra að samtökin starfi í þágu allra sem greinast með heilabilun óháð orsök.

Stjórn og starfsfólk hafa leitað að nýju nafni félagsins í nokkurn tíma og hafa margar tillögur borist. Stjórn telur að nafnið 'Heilahjálp – samtök um heilabilun' lýsi starfsemi félagsins betur en núverandi nafn.

Starfsfólk mun nú undirbúa nafnabreytingu vel og kynna hana betur seinna á árinu. 

Hlynur Sigurðsson og Heiðrún Janusardóttir komu ný inn í stjórn. Sigurjón Þórðarson og Júlía Rós Atladóttir hættu í stjórn og er þeim þökkuð ómetanleg störf í þágu samtakanna.

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?