Á hvaða hlaupara ætlar þú að heita í ár?
23. júní 2026
Reykjavíkurmaraþonið fer fram þann 22. ágúst og er einn mikilvægasti fjáröflunarviðburður ársins fyrir Alzheimersamtökin. Á hverju ári velur fjöldi fólks að hlaupa til styrktar samtökunum og með því leggja hlaupararnir mikilvægu starfi okkar lið. Fyrir þann stuðning erum við afar þakklát 💜
Skráðu þig og deildu þinni sögu
Við hvetjum öll sem ætla að hlaupa fyrir Alzheimersamtökin til að skrá sig á hlaupastyrkur.is. Þar getur þú sett inn mynd og sagt frá því hvers vegna þú valdir að hlaupa fyrir málefnið. Persónulegar sögur vekja athygli, skapa tengingu og hvetja fleiri til að styðja við bakið á hlaupurunum okkar.
Hittu okkur á Fit & Run
Dagana fyrir hlaupið verðum við með bás á Fit & Run í Laugardalshöllinni. Við hlökkum til að hitta hlauparana okkar og hvetjum alla sem hlaupa fyrir Alzheimersamtökin til að kíkja við, spjalla við okkur og sækja glænýjan hlaupabol.
Taktu þátt – jafnvel þótt þú hlaupir ekki
Það eru margar leiðir til að styðja málefnið. Ef þú ætlar ekki að taka þátt í hlaupinu sjálfu getur þú heitið á einn af hlaupurunum okkar. Á hlaupastyrkur.is má finna einstaklinga og hópa sem hlaupa til styrktar Alzheimersamtökunum. Veldu þinn hlaupara og vertu með í að styðja mikilvægt málefni 💜