25 ára afmæli Fríðuhúss fagnað
24. júní 2026
Mikil gleði ríkti þegar 25 ára afmæli Fríðuhúss var fagnað með veglegri afmælisveislu laugardaginn 6. júní síðastliðinn. Um 150 gestir mættu til að samgleðjast húsinu og þeim mikilvæga áfanga sem starfsemin hefur náð.
Gestir nutu samverunnar, tónlistar og hátíðarstemningar og þá voru einnig nokkur dansspor stigin. Afmælið var skemmtileg og falleg stund fyrir þau fjölmörgu sem tengjast Fríðuhúsi með einum eða öðrum hætti. Starfsfólk húsins er afar þakklátt fyrir frábærar viðtökur, hlý orð í þeirra garð, gjafirnar og blómin.
Tónlistarfólkinu Bjarna Hall, Reyni Jónassyni, Agnesi Löve og hjónunum Birnu og Kristjáni eru færðar sérstakar þakkir fyrir fallegan tónlistarflutning sem setti skemmtilegan svip á hátíðina og gladdi gesti.
Frá stofnun árið 2001 hefur Fríðuhús verið mikilvægur vettvangur fyrir einstaklinga með heilabilun og aðstandendur þeirra. Í aldarfjórðung hefur starfsemin lagt áherslu á stuðning, félagslega virkni og ánægjulegar samverustundir sem stuðla að auknum lífsgæðum þeirra sem þjónustuna sækja.
Afmælið var kærkomið tækifæri til að líta yfir farinn veg og fagna þeim árangri sem náðst hefur. Um leið horfir starfsfólk Fríðuhúss bjartsýnt til framtíðar.