Á aðalfundi Alzheimer Europe sem haldinn var í Ósló vorið 2008 var samþykkt „Réttindayfirlýsing AE “
sem áskilur fólki með heilabilun, þeim sem annast þá og öllum öðrum sem
málið varðar t.d. réttindum sem ekki eru umsemjanleg heldur
skilyrðislaus.
Vistunarmat er faglegt, einstaklingsbundið mat á þörfum einstaklinga
fyrir varanlega búsetu á hjúkrunarheimili. Það er staðlað mat ásamt
skilgreindum upplýsingum frá heilbrigðis- og félagsþjónustu og
svæðisskrifstofu málefna fatlaðra auk læknabréfa frá læknum viðkomandi,
eftir því sem við á.
Metnar eru félagslegar aðstæður, heilsufar og andlegt ástand auk
þess sem metin er færni í athöfnum daglegs lífs og gefur niðurstaða
vistunarmats til kynna hversu mikil þörf er fyrir langtíma búsetu á
hjúkrunarheimili.
Síðan 1991 hefur vistunarmat verið forsenda umsóknar fyrir dvöl á
hjúkrunarheimili. Vistunarmatsferlið er sniðið að erlendri fyrirmynd og
hefur gefist vel hérlendis. Því er ætlað að endurspegla raunverulega
þörf þess sem þarf á varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili að halda,
óháð aldri. Er litið svo á að þetta fyrirkomulag sé upplýsandi og
réttlát leið til að meta þörf fyrir langvarandi dvöl á
hjúkrunarheimili.
Frá 1. janúar 2008 fluttist vinna við gerð vistunarmats frá
þjónustuhópum sveitarfélaga til vistunarmatsnefnda í hverju
heilbrigðisumdæmi. Frá sama tíma var yfirumsjón með framkvæmd
vistunarmats flutt frá heilbrigðisráðuneytinu til Landlæknisembættisins. Sjá nánar á vef Landlæknisembættisins