Heimsókn Austurland

18. apríl 2024

Starfsmenn Alzheimersamtakanna verða á Austurlandi dagana 22.-24. apríl 2024 með fræðslu, kynningarfund og ráðgjafaviðtöl. Ráðgjöf fyrir fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra 22.-23. apríl, hægt er að bóka tíma með að senda póst á radgjafi@alzheimer.is eða hringja í s.520 1082.

Munum leiðina.... Fræðslu og kynningarfundur Alzheimersamtakanna

Mánudaginn 22. april kl. 17:00 - 18:30 í sal Krabbameinsfélags Austfjarða, Sjávargötu 1, Reyðarfirði.

Þriðjudaginn 23. apríl kl. 17:00 - 18:30 í Hlymdölum, Miðvangi 6, Egilsstöðum.

Kynntu þér þann stuðning sem er í boði fyrir fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra. Öll velkomin og aðgangur ókeypis.

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?