Fræðslufundur 10. október 2023
Fræðslufundur október mánaðar fjallar um aukna vitund, umræðu og skilning í samfélaginu sem skiptir fólk með heilabilun og aðstandendur þess öllu máli. Fyrirlestur frá #DÆTUR sem eiga það sameiginlegt að vera mæður barna á leik- og grunnskólaaldri, virkir þátttakendur í atvinnulífinu og dætur foreldris með heilabilun. Sigríður Pétursdóttir og Árný Ingvarsdóttir leiða hópinn og segir frá reynslu þeirra með samverunni og samstöðunni. #DÆTUR hlupu í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2023 og segja okkur frá þeirri upplifun. Fjölmennum í Hafnarfjörðinn og fræðumst saman. Fyrir þá sem komast ekki á staðinn þá verðum við í beinu streymi hér: https://vimeo.com/event/1698861 og upptökur aðgengilegar eftir fundinn.
Alzheimersamtökin
Suðurgata 41
kl 16:30 - 17:30