Erfðir, áhættuþættir...

Erfðir, áhættuþættir og forvarnir heilabilunarsjúkdóma

Hvað ræður því hvort við fáum heilabilunarsjúkdóm og hversu mikið getum við sjálf haft áhrif?

Í þessu erindi fjallar Steinunn Þórðardóttir, öldrunarlæknir, um þá þætti sem hafa áhrif á áhættu okkar á að þróa með sér heilabilunarsjúkdóm. Hún fer yfir bæði erfðaþætti og lífsstíl, og hvað það getur þýtt ef heilabilun er algeng í fjölskyldunni.

Þá fer Steinunn yfir það hvað hvert og eitt okkar getur gert til að draga úr eigin áhættu. Skiptir heilaleikfimi mestu máli – eða eru aðrir þættir sem vega þyngra?

FYRIRLESARI
Steinunn Þórðardóttir er öldrunarlæknir og formaður Læknafélags Íslands. Hún starfar í dag sem framkvæmdastjóri lækninga hjá Hrafnistu 

FYRIR HVERJA
Öll velkomin. Engin skráning nauðsynleg.

HVENÆR
Fimmtudaginn 16. apríl kl. 17:00

HVAR
Fyrirlesturinn verður haldinn í húsnæði samtakanna í St. Jó í Hafnarfirði á 3. hæð. Það eru bílastæði báðu megin við húsið – fleiri Hringbrautarmegin.

UPPTAKA
Fyrirlesturinn verður tekinn upp og settur á vefinn okkar daginn eftir.

Erfðir, áhættuþættir og forvarnir heilabilunarsjúkdóma

16. apríl 2026

kl 17:00 - 18:00

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?