12 ára bresk/íslensk stúlka, Olivia Erla, syngur til styrktar Alzheimersamtökunum til heiðurs íslenskri ömmu sinni sem þjáist af minnistapi.
Með kaupum á geisladisknum, Móðir mín kær, færð þú ekki einungis geisladisk með fallegu lagi sungið á íslensku og ensku heldur einnig kort sem hægt er að skrifa skilaboð á til þeirra sem þú vilt gleðja og eruð þér kær.
ALZHEIMERSAMTÖKIN vilja stuðla að bættri þjónustu við fólk með heilabilunarsjúkdóma og vera ráðgefandi afl í baráttunni við þá.