Tónlist í umönnunarstörfum
2. apríl 2024
Námskeið hjá Mímir-símenntun 21. og 23. maí 2024.
Viltu nota tónlist í starfi? Tónlist hefur verið hluti af mannlegri tilveru frá upphafi. Tónlist er áhrifaríkt verkfæri sem allir geta nýtt sér sem sinna börnum og fullorðnum.
Námskeiðið er fyrir starfsfólk í umönnunarstörfum, t.d. heimahjúkrun og á hjúkrunarheimilum. Einnig fyrir aðstandendur fólks með heilabilun.
Allar upplýsingar eru að finna í hlekk fyrir neðan.
Umsögn nemanda
Það sannarlega opnaði augu mín fyrir nýjum hugmyndum um hvernig mögulega maður getur nálgast fólk með heilabilun með því að nota tónlist. Tónlist virðist vera með því síðasta sem hverfur úr minni fólks og yfirleitt virðist tónlist vekja gleði í hugum fólks og láta því líða vel. Ég mæli hiklaust með þessu námskeiði og vil gjarnan taka svo djúpt í árinni með að segja að allt starfsfólk sem vinnur með bæði öldruðum og fólki með heilabilun ætti að sækja þetta námskeið.
Magnea Tómasdóttir
Magnea Tómasdóttir söngkona er kennari á námskeiðinu og hefur um árabil helgað sig tónlistarstörfum með eldra fólki og fólki með heilabilunarsjúkdóma. Hún kennir í Listaháskóla Íslands námskeiðið Tónlist og heilabilun og býður upp á tónlistarnámskeið í Seiglunni sem er þjónustumiðstöð Alzheimersamtakanna.