Kynningarfundur um nýja og metnaðarfulla námsleið
29. apríl 2025
Mánudaginn 5. maí kl. 12:00 verður kynningarfundur á Zoom um nýja og metnaðarfulla námsleið: Ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun
60 ECTS framhaldsnám við Háskólann á Akureyri í samstarfi við Háskóla Íslands. Áhersla er lögð á persónumiðaða, samþætta og heildræna ráðgjöf til fólks með heilabilun, aðstandenda og faghópa.
Fundurinn fer fram á Zoom og er opinn öllum: https://eu01web.zoom.us/j/68664190353
Umsóknarfrestur í námið er til 5. júní 2025