Fræðslufundur um líðan aðstandenda

14. mars 2023

Fræðslufundur mars mánaðar fjallar um aðstandendur þar sem Brynhildur Jónsdóttir sálfræðingur í Seiglunni þjónustumiðstöð Alzheimersamtakanna flytur fyrirlestur sinn: Aðstandendur með heilabilunarsjúkdóma - helstu áskoranir á mismunandi stigum sjúkdómanna. Aðeins um Brynhildi: hún starfaði eftir mastersnám á Minnismóttökunni á Landkoti við taugasálfræðilegar greiningar á fólki sem þangað leitaði vegna gruns um byrjandi heilabilun. Brynhildur starfaði einnig sem klínískur sálfræðingur á Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni þar sem hún sinnti greiningum og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum. Við tökum fram að fyrirlesturinn er einungis fyrir aðstandendur/fagfólk og aðra sem hafa áhuga á málefninu og ekki sjúklinginn sjálfan.

Hvetjum alla til að deila fræðslunni í sínu nærumhverfi og hvetja aðstandendur til að sækja sér stuðnings.

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?