Skagaströnd komin með fjólubláan bekk

30. janúar 2026

Á Skagaströnd hefur nú verið settur upp fjólublár bekkur sem ætlað er að vekja athygli á heilabilun og stuðla að fræðslu og opnari umræðu um málefnið í samfélaginu.

Frænkur, sem er mjög annt um bæinn sinn og hafa lagt sitt af mörkum til að hann sé snyrtilegur og fallegur, höfðu séð fjólubláa bekki af þessu tagi í öðrum sveitarfélögum. Þeim fannst vanta fleiri bekki á Skagaströnd og voru hrifnar af hugmyndinni á bak við fjólubláu bekkina. Þær höfðu því samband við sveitarfélagið sem tók vel í fyrirspurn þeirra og keypti bekk.

Bekkurinn er staðsettur á Fellsbrautinni og er hugsaður sem notalegur áningarstaður þar sem fólk getur sest niður og notið umhverfis og útsýnis.

Á bekknum er platti merktur Alzheimersamtökunum. Um er að ræða nýja merkingu sem samtökin tóku nýverið upp, en plattinn er bæði endingarbetri og hentugri í viðhaldi en málað letur.

Setja upp bekk

Ef þitt bæjarfélag hefur áhuga á að setja upp bekk þá má endilega hafa samband við okkur í síma 533 1088 eða senda okkur tölvupóst á alzheimer@alzheimer.is

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?