Alzheimersamtökin heimsækja Austfirði
16. apríl 2025
Eitt af meginmarkmiðum okkar er auka þekkingu og skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra glíma við. Við höldum því reglulega fræðsluerindi um starf samtakanna, heilabilun og samskipti víðsvegar um landið.
Austfirðir
Nú er förinni heitið austur á firði þar sem við höldum tvenn opin fræðsluerindi annars vegar á Seyðisfirði og hins vegar á Reyðarfirði.
• Mán. 28. apríl kl. 17:00 – á Heilsugæslunni á Seyðisfirði
• Þri. 29. apríl kl. 17:00 – á Reyðarfirði í sal Krabbameinsfélags Austfjarða, Sjávargötu 1 Þeir sem mæta öðlast skilning á heilabilun og hvernig megi bregðast við breyttum aðstæðum. Þá verður farið yfir leiðir til að auðvelda samskipti og hugmyndir fyrir ánægjulegar samverustundir reifaðar.
Hverjir
Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna mæta.
Á fundinum á Reyðarfirði verða Helga Sól Birgisdóttir, forstöðumaður heimaþjónustu Fjarðarbyggðar og Helga Elísabet Guðlaugsdóttir, teymisstjóri heimaendurhæfingarteymis HSA jafnframt með stutta kynningu.
Fyrir hverja
Fyrirlestrarnir eru opnir öllum áhugasömum og aðgangur ókeypis.