Fræðslufundur Alzheimersamtakanna verður haldinn þriðjudaginn 9.mars kl. 16:30, sjá viðburð á Facebook hér.
Berglind Magnúsdóttur skrifstofustjóri öldrunarmála velferðarsviðs Reykjavíkurborgar fræðir um þá þjónustu sem er á vegum Reykjavíkurborgar fyrir fólk með heilabilun. Fræðslufundur verður rafrænn og í beinu streymi. Hægt er að spyrja fyrirlesara spurninga í lok fyrirlesturs. Einnig verða upptökur af fyrirlestri aðgengilegar eftir streymið. Við hvetjum ykkur til að taka virkan þátt í fyrirlestrinum og munum að okkar þátttaka skiptir máli!
Vilt þú taka þátt í uppbyggingu á nýrri þjónustumiðstöð fyrir fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra? Leggðu okkur lið á www.styrkja.is/alzheimer/ Þín þátttaka skiptir máli!
Með hjálp Oddfellowreglunni á Íslandi er hafinn undirbúningur og framkvæmdir í St.Jó í Hafnarfirði. Enn hefu rekki fengist vilyrði fyrir rekstrarstyrkjum frá ríkinu. Stefnum á opnun haustið 2021.
Pálmi V. Jónsson, yfirlæknir á öldrunardeild Landspítalans talaði á fræðslufundi um velferð eldri borgara sem haldinn var í síðustu viku og í erindi hans kom fram að ýmislegt mætti betur fara þegar þjónusta við aldraða er annars vegar. Hann bendir á að hér á landi séu fá úrræði fyrir eldra fólk, aðallega heimahjúkrun og hjúkrunarheimili. „Við þurfum að líta á og tala um það upphátt að heilsugæslan sé vagga öldrunarþjónustunnar. Veikasti hópurinn þarf gjör-heilsugæslu og einungis 5 til 10% af eldra fólki er mikið veikt að sögn Pálma. Tuttugu til þrjátíu prósent eru viðkvæmir einstaklingar og 50 til 60 % frekar hraustir. Veikasti hópurinn þurfi gjör-heilsugæslu. Því þurfi læknarnir og hjúkrunarfræðingarnir að vinna saman og öldrunarlæknar styðji við bakið á þeim". Sjá nánar viðtal við Pálma í umfjöllun á RÚV hér.
Stuðningshópar fyrir aðstandendur fólks með heilabilun. Aðstandendur eru fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir en á það sameiginlegt að eiga ástvin heima, í dagþjálfun eða á hjúkrunarheimili.
Ekki þarf að skrá sig. Allir velkomnir.
Stuðningshópar fyrir aðstandendur fólks með heilabilun. Aðstandendur eru fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir en á það sameiginlegt að eiga ástvin heima, í dagþjálfun eða á hjúkrunarheimili.
Ekki þarf að skrá sig. Allir velkomnir.
Stuðningshópur ætlaður yngri afkomendum fólks með heilabilunarsjúkdóma.
Vinsamlegast senda tölvupóst til vilborg@alzheimer.is til að skrá sig.