Hlíðabær

Hlíðabær tók til starfa 22. mars 1986 og er fyrsta dagþjálfunin sem er sérstaklega ætluð þeim sem greinst hafa með heilabilunarsjúkdóma. Hlíðabær er sérhæfð dagþjálfun fyrir fólk sem greinst hefur með heilabilunarsjúkdóm. Heimilislæknar senda beiðni um öldrunarmat á Landakot ef vísbendingar eru um minnissjúkdóm.

Hlíðabær

Opið alla virka daga

08:00 -16:00

Öldrunarlæknir á Landakoti sækir um sérhæfða dagþjálfun samráði við skjólstæðing og aðstandendur eftir að fram hefur farið öldrunarmat á minnismóttöku sem staðsett er á Landakoti. Haldið er utan um biðlista fyrir sérhæfða dagþjálfun á Landakoti og er hægt að fá upplýsingar um stöðu mála þar.Þegar einstaklingur fær pláss er honum og/eða fjölskyldu hans boðið í forviðtal þar sem starfsemin er kynnt og viðkomandi síðan boðið í heimsókn og hann hvattur til að kynna sér starfsemina áður en hann tekur ákvörðun um þjálfun.

Hlíðabær er sjálfseignarstofnun. Stjórn heimilisins er sameiginleg með Múlabæ, Síðumúla 32.   Stofnaðilar, SÍBS og RRKÍ eiga hvor um sig 2 fulltrúa í stjórn, auk þess er 1 fulltrúi frá Félagi eldri borgara í Reykjavík.

Markmið

  • Að bæta líðan skjólstæðinganna með markvissri þjálfun.
  • Að auka möguleika þeirra á að búa lengur á eigin heimili.
  • Að styðja aðstandendur.

Í Hlíðabæ er lögð áhersla á jákvæða virkni, virðingu fyrir einstaklingnum og vellíðan bæði skjólstæðinga og aðstandenda heimilisins.  Skipulögð dagskrá skiptist í þjálfun, afþreyingu og hvíld. Leitast er við að koma til móts við áhuga og hæfni hvers og eins þannig að allir fái viðfangsefni við hæfi, nýti sínar sterku hliðar og njóti þess að vera þáttakendur í starfi og leik.
 

Dagskráin

  • Líkamsrækt, t.d. leikfimi, sund, gönguferðir og dans.
  • Þjálfun í ýmsum athöfnum daglegs lífs. T.d. heimilisverk,  bakstur,  sultugerð, garðrækt o.fl.
  • Fjölbreytt starf í vinnustofum Hlíðabæjar, smíðavinna, kertagerð, kortagerð, prjón, saumar og margt fleira.
  • Söngur, lestur, umræður og ýmislegt fleira sem stuðlað getur að aukinni virkni og ánægju.
  • Ferðir á söfn, kaffihús o.fl. Einnig eru farnar lengri ferðir, sérstaklega á sumrin.
  • Aðstandendafundir, þar sem starfsemin Hlíðabæjar er kynnt.
  • Fjölskyldudagur x 2 á ári. (sumarferð og jólabasar)
  • Fjölskyldufundir ca. 6 vikum eftir innritun og síðan eftir þörfum.
  • Upplýsingar, ráðgjöf og stuðningur.

Stjórn

Deildarstjóri

Hjördís Halldóra Sigurðardóttir

562 1722

hlidabaerhjordis@simnet.is

Forstöðumaður

Þórunn Bjarney Garðarsdóttir

hjúkrunarfræðingur

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?