Styrkur frá Knattspyrnudómarafélagi Norðurlands

11. apríl 2024

Knattspyrnudómarafélag Norðurlands afhenti í dag stuðningshópi fyrir  aðstandendur fólks með heilabilun,  hópurinn kallar sig Sólblómið,  styrk að upphæð kr. 350,000 sem er innkoman af  seldnum aðgögnumiðum að leik KA og Þór í úrslitum Kjarnafæðismótsins sem fram fór á dögunum.

,,Okkur þykir virkilega gaman að geta lagt starfi stuðningshópsins lið með þessum hætti. Leikmenn beggja liða dómarar og stjórn KDN ásamt bæjarbúum sem fjölmenntu á leikinn í kulda  greiddu aðgangseyri svo sannarlega með bros á vör.    Við vitum að þessir peningar fara á góðan stað.” sagði Aðalsteinn Tryggvasson formaður KDA í samtali við Vikublaðið.

,,Þessi styrkur  frá KDN er okkur mikilsvirði og það er virkilega þakkarvert að hópurinn hafi orðið fyrir valinu hjá knattspyrnudómurum.   Ég get með sanni sagt að þessi peningar koma sér afar vel" sagði Björg Jónína Gunnarsdóttir en hún ásamt Olgu Ásrúnu Stefánsdóttur eru aðstandendum innan handar  i starfi stuðningshópsins.

Stuðningshópar Alzheimersamtakanna byggjast á hugmyndafræði jafningjastuðnings og er markmiðið með samverunni að hittast, spjalla og deila reynslunni.
Kærar þakkir til ykkar Knattspyrnudómarafélag Norðurlands.

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?