Páskakveðja

27. mars 2024

Alzheimersamtökin á Íslandi senda landsmönnum öllum sínar bestu óskir um gleðilega páskahátíð. Skrifstofa samtakanna verður lokuð yfir páskana en hægt verður að senda minningarkort á heimasíðu okkar www.alzheimer.is. Við minnum á bíósýningu hjá Bíó Paradís föstudaginn langa, 29. mars kl. 14:30. Bíó Paradís eru heilavinir af öllu hjarta og hluti af styðjandi samfélagi fyrir fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra. Sýnd verður kvikmyndin Hárið eftir Milos Forman, með íslenskum texta. Aðgangur er ókeypis, en nauðsynlegt er að bóka miða og eru allir hjartanlega velkomnir. Allar nánari upplýsingar er að finna hér: https://www.alzheimer.is/frettir/bioparadis24

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?