Maríuhús til Skjóls

1. maí 2024

Alzheimersamtökin hafa undanfarin ár í samstarfi við Reykjavíkurborg, rekið starfsemi sérhæfðar dagþjálfunar fyrir einstaklinga með heilabilun í Maríuhúsi við Blesugróf í Reykjavík. Vegna vandamála sem tengjast húsnæðinu í Blesugróf var starfsemi Maríuhúss flutt í húsnæði Skjóls við Kleppsveg í desember 2023. Þann 1. maí tók Skjól svo alfarið við rekstrinum af Alzheimersamtökunum.

Við þökkum skjólstæðingum, aðstandendum og starfsfólki kærlega fyrir samvinnuna í gegnum árin og óskum öllum velfarnaðar í nýjum og góðum höndum.

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?