Styrkur frá Lionsklúbbi Hafnarfjarðar

16. apríl 2024

Alzheimersamtökin fengu skemmtilega heimsókn frá meðlimum í Lionsklúbbi Hafnarfjarðar í morgun. Þeir fengu kynningu á starfsemi samtakanna og Seiglunni í Lífsgæðasetrinu í Hafnarfirði.

Fyrir hönd Lionsklúbbs Hafnarfjarðar færðu þeir samtökunum styrk upp á 250.000 kr. sem mun nýtast vel í starfsemi samtakanna. Við þökkum þeim kærlega fyrir styrkinn og heimsóknina!

Á myndinni eru þeir ásamt Ragnheiði Ríkharðsdóttur stjórnarformanni Alzheimersamtakanna.

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?