Aðalfundur 2024

26. mars 2024

Aðalfundur Alzheimersamtakanna var haldinn þann 25.mars 2024 á Grand Hóteli.

Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf.

Ragnheiður Ríkharðsdóttir formaður setti fundinn, Sigurjón Þórðarson var kjörinn fundarstjóri og Guðlaugur Eyjólfsson ritari.

Ragnheiður Ríkharðsdóttir var endurkjörinn formaður samtakanna til 1 árs.

Árni Sverrisson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og var honum þökkuð ómetanleg störf í gegnum árin í þágu samtakanna.

Vilborg Gunnarsdóttir og Ragnhildur Sverrisdóttir voru kosnar til tveggja ára í aðalstjórn á síðasa stjórnarfundi.  

Magnús Karl Magnússon og Júlía Rós Atladóttir voru kosin til tveggja ára í aðalstjórn.  

Sigurjón Þórðarson og Emil Emilsson voru kosnir sem varamenn til eins árs. 

Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð?