Fræðslufundur FAAS verður haldinn miðvikudaginn 17. febrúar n.k. en ekki þriðjudag eins og misritaðist í fréttabréfinu. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum
Rétt er að fundurinn verður haldinn miðvikudaginn þann 17. febrúar 2010 kl. 20:00 í Grund, Dvalar- og hjúkrunarheimili - Hringbraut 50 - 107 Reykjavík. Húsið verður opnað kl. 19:30
Ath. Gengið er inn í austustu álmuna frá Hringbraut.
Dagskrá fundarins:
Fundur settur; María Th. Jónsdóttir formaður
Starfsmaður Grundar kynnir heimilið í stuttu máli
Kynning á þjónustufyrirtækinu Heima er best
Hrefna Brynja iðjuþjálfi hjáÖldrunarheimilum Akureyrar kynnir Eden hugmyndafræðina með áherslu á samskipti og umhverfi
Umræður
Kaffi og meðlæti í boði dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grund